Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá.
Til að nota vefþuluna þarftu að setja tengil á viðeigandi stað í vefvafranum þínum.
Hér eru leiðbeiningar:
Vefþulan er splunkuný og okkur þætti vænt um ef þú létir okkur vita hvernig hún virkar, hvort eitthvað mætti betur fara, hvort einhverjir hnökrar séu á framburði eða virkni. Þú getur gert það með því að senda póst í issues@hexsoftware.net - eða ef þú þarft hjálp geturðu hringt í síma 864 6693.
Ef þú vilt leggja þitt að mörkum og styðja við Vefþuluna geturðu gert það hér (í gegn um PayPal).
Lestrarörðugleikar á borð við ýmsar útgáfur af lesblindu þvælast fyrir mörgu af okkar besta fólki - og sumt hrekst jafnvel frá námi vegna þeirra.
Við viljum leggja okkar að mörkum til þess að gera fólki lífið aðeins auðveldara, hjálpa því að hjálpa sér sjálfu eins og sagt er.
Þess vegna bjóðum við ókeypis aðgang að netsíðu og netkerfi sem gerir fólki kleift að fá hvaða texta sem er lesinn upphátt. Það er Landsbankinn sem er bakhjarl verkefnisins.
Hér er það sem þú færð - frítt:
- Þú getur merkt texta á hvaða vefsíðu sem er og smellt á tengilinn Lestu þetta. Við það er textinn fluttur á vefsíðu hjá okkur og lesinn upphátt.
- Þú getur slegið inn hvaða texta sem er og fengið hann lesinn upphátt. Upplagt við að sannreyna hvort verkefni sem skila þarf eru rétt skrifuð.
Til viðbótar vinnum við með skólum að því að auðvelda fólki að taka próf. Þá gefst námsmönnum tækifæri til að:
- Fá einstakar spurningar lesnar fyrir sig, til að tryggja réttan skilning.
- Fá svarið lesið yfir til að tryggja að hugsunin hafi komist óbrengluð til skila.
Þar sem þetta er vefþjónusta þá þarf engan sérstakan hugbúnað á tölvuna til að þetta virki. Allt sem þarf er vefvafri og hljóðspilari - og náttúrulega netsamband.
Hér færðu upplýsingar um það hvernig þú setur upp þjónustuna:
Þegar uppsetningu er lokið er notkunin einföld:

