Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá.
Til að nota vefþuluna þarftu að setja tengil á viðeigandi stað í vefvafranum þínum.
Hér eru leiðbeiningar:
Vefþulan er splunkuný og okkur þætti vænt um ef þú létir okkur vita hvernig hún virkar, hvort eitthvað mætti betur fara, hvort einhverjir hnökrar séu á framburði eða virkni. Þú getur gert það með því að senda póst í issues@hexsoftware.net - eða ef þú þarft hjálp geturðu hringt í síma 864 6693.
Ef þú vilt leggja þitt að mörkum og styðja við Vefþuluna geturðu gert það hér (í gegn um PayPal).
Fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök, sem og skólar, geta samið um innfellingu á Vefþulunni á vefi sína.
Þar með bjóða þau þeim sem heimsækja vefina bestu hugsanlegu leið til að fá efnið lesið og hafa fulla stjórn á textameðhöndlun, hraða lesturs og framsetningu efnisins.
Vefþulan er seld í áskrift og er áskriftargjald ársins 2008 svo:
- Mánaðargjald: 9.500,-
- Árgjald: 95.000,- (sé árið greitt fyrirfram)
Báðar tölur eru án VSK.
Áskriftargjald fyrir árið 2009 hefur verið ákveðið að teknu tilliti til gengisbreytinga á Evru, en öll leyfisgjöld vegna undirliggjandi tæknibúnaðar Vefþulunnar eru í Evrum.
- Mánaðargjald: 14.000,-
- Árgjald: 140.000,- (sé árið greitt fyrirfram)
Þeir sem semja um árgjald fyrir 1. nóvember 2008 fá þó Vefþuluna innfellda á "gamla genginu", eins og farið er að sjást full oft í auglýsingum.
Athygli skal vakin á því að samningur um árgjald Vefþulunnar er á föstu verði, vísitölubundnu, þannig að menn njóta ávinningsins um ókomna tíð að vera fljótir til.
Að gerast áskrifandi er einfalt.
Hér má nálgast staðlaðan samning sem fylla þarf út og senda með tölvupósti til Tóta hjá Hexiu, í póstfang toti@hexsoftware.net.
Sækja samning (Word skjal)
Tæknilegar upplýsingar (PDF skjal)

