Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá.
Til að nota vefþuluna þarftu að setja tengil á viðeigandi stað í vefvafranum þínum.
Hér eru leiðbeiningar:
Vefþulan er splunkuný og okkur þætti vænt um ef þú létir okkur vita hvernig hún virkar, hvort eitthvað mætti betur fara, hvort einhverjir hnökrar séu á framburði eða virkni. Þú getur gert það með því að senda póst í issues@hexsoftware.net - eða ef þú þarft hjálp geturðu hringt í síma 864 6693.
Ef þú vilt leggja þitt að mörkum og styðja við Vefþuluna geturðu gert það hér (í gegn um PayPal).
Ef þú ert að nota Internet Explorer, þá gerirðu svona:
Hér er tengillinn til að nota:
Svona gerirðu:
Til að flýtistikan "Links bar" sjáist efst í vafranum:
- Smelltu á Tools takkann
, smelltu á Toolbars, og því næst á Links.
Til að bæta tenglinum við flýtistikuna
- Hægri-smelltu á þennan tengil: Lestu þetta og veldu Add to Favourites.
- Í Add to Favourites glugganum þá velurðu Create In og síðan Links.
- Smellir síðan á Add
Tölvan æmtir þá aðeins undan þessu og segir að þetta geti verið hættuleg aðgerð. Það er til komið af því að við erum að setja inn skriftu í tengilinn. Í þessu tilfelli er það ekki hættulegt, þannig að þér er óhætt að samþykkja.
Þá ætti Lestu þetta að dúkka upp í flýtistikunni. Eftir það geturðu farið á hvaða vefsíðu sem er, valið einhvern texta með músinni og smellt síðan á Lestu þetta.


, smelltu á Toolbars, og því næst á Links.