Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá.
Til að nota vefþuluna þarftu að setja tengil á viðeigandi stað í vefvafranum þínum.
Hér eru leiðbeiningar:
Vefþulan er splunkuný og okkur þætti vænt um ef þú létir okkur vita hvernig hún virkar, hvort eitthvað mætti betur fara, hvort einhverjir hnökrar séu á framburði eða virkni. Þú getur gert það með því að senda póst í issues@hexsoftware.net - eða ef þú þarft hjálp geturðu hringt í síma 864 6693.
Ef þú vilt leggja þitt að mörkum og styðja við Vefþuluna geturðu gert það hér (í gegn um PayPal).
Uppsetningin er sáraeinföld.
Dragðu einfaldlega tengilinn hér fyrir neðan í flýtistikuna í vefvafranum þínum.
Lestu þetta < - - - Dragðu þennan tengil
Þegar hann er kominn þangað, þá geturðu farið á hvaða síðu sem er, merkt texta með músinni og smellt á þennan tengil. Við það er farið yfir á síðu þar sem textinn er sýndur og lesinn.

